Refund policy
Skil á vörum
Rýja tekur við skilum á pöntunum innan 14 daga frá afhendingu, í samræmi við íslensk neytendalög. Ef eitthvað er ekki alveg eins og það á að vera geturðu skilað vörunni innan þessa frests. Nánari upplýsingar má finna hér:
Afturköllun og réttur til að skila vöru og þjónustu
Vörur sem er skilað verða að vera ónotaðar, óskemmdar og í upprunalegu ástandi og umbúðum. Leðursól má ekki bera nein merki um notkun. Við mælum með að inniskór séu mátaðir innandyra á hreinu undirlagi.
Ekki er hægt að taka við vörum sem bera merki um slit, skemmdir eða notkun utandyra.
Til að óska eftir skilum eða skipti, vinsamlegast hafðu samband við okkur á support@ryja.is
Kostnaður við endursendingu er á ábyrgð viðskiptavinar nema varan sé gölluð.
Þegar skil hafa verið móttekin og samþykkt verður endurgreiðsla lögð inn á sama greiðslumáta og notaður var við kaupin.
Vöruskipti
Rýja býður upp á skipti í aðra stærð eða aðra gerð, eftir því sem birgðir leyfa.
Ef ný vara er dýrari þarf að greiða mismuninn áður en skiptin eru framkvæmd. Ef ný vara er ódýrari verður mismunurinn endurgreiddur á sama greiðslumáta og notaður var við kaupin.
Vörur sem sendar eru í skipti þurfa að uppfylla sömu skilyrði og gilda um skil. Þegar varan hefur verið móttekin verður ný vara send út.